Jógaferð til Vestmannaeyja

Dags:

mán. 22. ágú. 2022 - mið. 24. ágú. 2022

Brottför:

Auglýst síðar

  • Skáli
Þessi viðburður er liðinn.

Útivist býður upp á jóga-, göngu- og sjósundsferð til Vestmannaeyja dagana 22. - 24. ágúst í sumar. Lagt verður af stað á einkabílum frá Reykjavík snemma á föstudagsmorgni og Herjólfur tekinn til Vestmannaeyja. Gist verður í Hraunprýði sem er stór og rúmgóður skáli Skátafélagsins Faxa á Skátastykkinu í Eyjum. Farið verður í gönguferðir alla dagana um þessa fallegu eyju og náttúrunnar notið. Jóga verður iðkað kvölds og morgna og synt í sjónum eftir hentugleika. Öllum er velkomið að taka þátt og ekki er krafist neinnar fyrri reynslu af jógaiðkun. Innifalið í verði er fararstjórn, kvöldverður á veitingahúsinu Gott og skálagisting.

Fararstjóri er Auður Jónasdóttir gönguleiðsögukona og jógakennari og Eyrún Lind Magnúsdóttir gönguleiðsögukona.

Verð 40.000 kr.
Félagsverð 29.000 kr.

Nr.

2508H06