Verð og skilmálar

Verðlisti 2025 Alm.verð Félagsverð
Básar 13.700 kr. 7.400 kr. 
Strútsskáli 12.200 kr. 5.800 kr. 
Fimmvörðuskáli 12.200 kr. 6.300 kr 
Sveinstindur 9.600 kr. 5.200 kr. 
Álftavötn 9.600 kr. 5.200 kr. 
Skælingar 9.600 kr. 5.200 kr. 
Tindfjallasel 11.100 kr. 5.200 kr. 
Félagsaðild í Útivist 2025 10.000 kr.  
Tjaldgisting á mann   2.400 kr. 1.000 kr.
Gistináttaskattur á hvert tjald  400 kr. 400 kr.
Sturta 600 kr. 600 kr. 
Aðstöðugjald 600 kr. 600 kr. 
Aðstöðugjald með aðstöðu í skálum       1.500 kr. 1.000 kr. 

Gistigjöld í skálum eru með gistináttaskatti.

Gistináttaskattur bætast við gistigjöld í tjaldi.

Börn á aldrinum 7-17 ára fá gistingu í skála með 50% afslætti og börn á aldrinum 0-6 ára fá gistinguna frítt.

Börn 0-12 ára frá frítt á tjaldsvæðum en eldri en 12 ára greiða fullt gjald.

Gistináttagjald er þó óháð aldri þess sem gistir.

Virðisaukaskattur, 11%, er innifalinn í ofangreindum gistigjöldum.

Við bókun þarf að greiða staðfestingargjald 1.000 kr. á mann fyrir hverja nótt, sem er ekki endurgreitt ef hætt er við bókun eða fækka þarf bókuðum plássum.
Hópabókanir þarf að greiða í einu lagi.

Afturköllun eða breytingar á pöntun á skálagistingu

Ef afbókun berst 7 dögum fyrir gistinótt eða fyrr endurgreiðir Útivist allt nema staðfestingargjaldið, 1.000 kr. á hvert gistipláss. Ekki er endurgreitt ef að afbókun berst innan viku frá gistinótt.

Vinsamlegast gangið vel um skála Útivistar og skiljið við þá eins og þið viljið koma að þeim.