Raðganga um Reykjaveginn, 2. leggur

Dags:

lau. 13. mar. 2027

Brottför:

Farið á eigin bílum. Hist á bílastæði við Leirdal kl. 9:00 og sameinast í bíla að upphafsstað.

Raðganga um Reykjaveginn, 2. leggur: Golfskálinn í Grindavík - Leirdalur

Gengið er frá golfskálanum meðfram Nesvegi að Bjarnagjá og þaðan inn í Grindavík. Leiðin liggur í gegnum bæinn og meðfram höfninni, áður en haldið er upp að Suðurstrandarvegi. Honum er fylgt austur að Festarfjalli og síðan gengið meðfram fjallinu að bílastæðinu við Fagradalsfjall. Þaðan er haldið meðfram Borgarfjalli, niður í Nátthaga og áfram að bílastæðinu í Leirdal.

Hin upphaflega leið Reykjavegarins lá norðan Grindavíkur, um Þorbjarnarfell, Baðsvelli, Hagafell og Vatnsheiði. Ný hraun hafa farið yfir stóran hluta þessarar leiðar og því er annar leggurinn nú færður suður fyrir nýju hraunin og liggur um Grindavík og meðfram Suðurstrandarvegi. 

Vegalengd er um 16 km og 350 m hækkun

Um Raðgönguna um Reykjaveginn 2027:
Raðgöngur Útivistar hafa verið afar vinsælar síðustu ár. Nú stendur Útivist fyrir raðgöngu um hina skemmtilegu leið um Reykjaveginn á fyrri hluta árs 2027. Gangan er í 7 hlutum, fyrsta gangan er 27 febrúar og sú síðasta 5. júní.

Þátttakendur fara ýmist á eigin bílum eða með rútu eftir aðstæðum og hað hentar á hverjum legg. Hægt er að koma í hvern legg fyrir sig en félögum í Úitivist býðst að kaupa alla leggina með ríflega 30% afslætti.

Reykjavegurinn er um 125 km löng stikuð gönguleið frá Reykjanesvita að Nesjavöllum. Hann var stikaður árið 1996 og er gjarnan sagður lengsta merkta gönguleið landsins. 

Hugmyndin að Reykjaveginum kom fram árið 1993 þegar Ari Trausti Guðmundsson kynnti hana fyrir Ferðamálanefnd Reykjavíkur. Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins tóku síðan verkefnið að sér og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum komu að undirbúningi og fjármögnun þess, ásamt útivistarfélögum og fleiri aðilum. Árið 1995 var ákveðið að leggja og merkja gönguleiðina og var hún stikuð sumarið 1996. Hugmyndin var að skapa samfellda gönguleið yfir Reykjanesskagann, með skálum eða gistimöguleikum á völdum stöðum.

Leiðin liggur þvert yfir Reykjanesskagann, frá sjávarsíðunni yst á Reykjanesi, um Grindavík, hraunin og hálsana á miðjum skaganum, yfir Bláfjöll og Hellisheiði og að Hengilssvæðinu og Nesjavöllum. Á leiðinni má sjá fjölbreytt landslag sem hefur að mestu mótast af eldvirkni: gígaraðir, hraun, sprungur, misgengi og jarðhitasvæði, en einnig gróðursæla dali og vötn. Víða er jafnframt gengið eftir gömlum þjóðleiðum, svo sem Prestastíg, Hrauntungustíg, Undirhlíðavegi og Selvogsgötu. Reykjavegurinn er því ekki aðeins löng gönguleið heldur líka eins konar þverskurður í gegnum jarðfræði, náttúru og samgöngusögu Reykjanesskagans.

Byrjun leiðarinnar hefur breyst vegna eldsumbrotanna við Grindavík frá árinu 2021. Ný hraun hafa farið yfir hluta hinnar upphaflegu leiðar og því þarf nú að ganga breyttar leiðir á fyrstu leggjunum. Vegalengdir og nákvæmlega leiðarinnar getur því verið mismunandi eftir því hvaða útfærsla er farin.

Verð 8.900 kr.
Félagsverð 5.900 kr.

Nr.

2703D01
  • Suðvesturland