Raðganga um Reykjaveginn, 1. leggur: Reykjanesviti – Golfskálinn í Grindavík
Gangan hefst við Reykjanesvita og í upphafi er fylgt hluta af Hundrað gíga leiðinni, um einkennandi eldfjallalandslag yst á Reykjanesi. Farið er yfir Nesveg og síðan inn á Reykjaveginn. Honum er fylgt þar til komið er að Prestastíg, gamalli þjóðleið milli Hafna og Staðarhverfis í Grindavík. Prestastíg er fylgt til suðurs niður að Húsatóftum og þaðan að golfskálanum í Grindavík.
Leiðinni hefur aðeins verið breytt vegna aukinnar atvinnustarfsemi á svæðinu.
Vegalengd er um 18 km og 200 m hækkun
Farið er á eigin bílum og hist við lokastað göngu: Golfskálann í Grindavík.
Um Raðgönguna um Reykjaveginn 2027:
Raðgöngur Útivistar hafa verið afar vinsælar síðustu ár. Nú stendur Útivist fyrir raðgöngu um hina skemmtilegu leið um Reykjaveginn á fyrri hluta árs 2027. Gangan er í 7 hlutum, fyrsta gangan er 27 febrúar og sú síðasta 5. júní.
Þátttakendur fara ýmist á eigin bílum eða með rútu eftir aðstæðum og hað hentar á hverjum legg. Hægt er að koma í hvern legg fyrir sig en félögum í Úitivist býðst að kaupa alla leggina með ríflega 30% afslætti.
Reykjavegurinn er um 125 km löng stikuð gönguleið frá Reykjanesvita að Nesjavöllum. Hann var stikaður árið 1996 og er gjarnan sagður lengsta merkta gönguleið landsins.
Hugmyndin að Reykjaveginum kom fram árið 1993 þegar Ari Trausti Guðmundsson kynnti hana fyrir Ferðamálanefnd Reykjavíkur. Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins tóku síðan verkefnið að sér og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum komu að undirbúningi og fjármögnun þess, ásamt útivistarfélögum og fleiri aðilum. Árið 1995 var ákveðið að leggja og merkja gönguleiðina og var hún stikuð sumarið 1996. Hugmyndin var að skapa samfellda gönguleið yfir Reykjanesskagann, með skálum eða gistimöguleikum á völdum stöðum.
Leiðin liggur þvert yfir Reykjanesskagann, frá sjávarsíðunni yst á Reykjanesi, um Grindavík, hraunin og hálsana á miðjum skaganum, yfir Bláfjöll og Hellisheiði og að Hengilssvæðinu og Nesjavöllum. Á leiðinni má sjá fjölbreytt landslag sem hefur að mestu mótast af eldvirkni: gígaraðir, hraun, sprungur, misgengi og jarðhitasvæði, en einnig gróðursæla dali og vötn. Víða er jafnframt gengið eftir gömlum þjóðleiðum, svo sem Prestastíg, Hrauntungustíg, Undirhlíðavegi og Selvogsgötu. Reykjavegurinn er því ekki aðeins löng gönguleið heldur líka eins konar þverskurður í gegnum jarðfræði, náttúru og samgöngusögu Reykjanesskagans.
Byrjun leiðarinnar hefur breyst vegna eldsumbrotanna við Grindavík frá árinu 2021. Ný hraun hafa farið yfir hluta hinnar upphaflegu leiðar og því þarf nú að ganga breyttar leiðir á fyrstu leggjunum. Vegalengdir og nákvæmlega leiðarinnar getur því verið mismunandi eftir því hvaða útfærsla er farin.