Byrjendanámskeið í bakpokaferðum

Dags:

mið. 12. feb. 2025 - sun. 1. jún. 2025

Brottför:

Hefur þig alltaf langað að prófa bakpokaferðir, en veist ekki hvar á að byrja? Eða er einfaldlega bara of langt síðan síðast og þú vilt rifja þetta upp.

Námskeiðið „Með allt á bakinu – byrjendanámskeið í bakpokaferðum“ er þá fyrir þig!
Hvort sem þú ert að byrja í því að ganga með allan búnað á bakinu eða hefur ekki gert það í langan tíma og vilt rifja það upp, þá færðu á þessu námskeiði þá þekkingu og reynslu sem þarf til að takast á við lengri ferðir á eigin vegum.

Námskeiðið fer yfir grunnatriði bakpokaferðalaga með skemmtilegum fyrirlestrum og dagsferðum, þar sem þú lærir allt frá því að velja réttan bakpoka og pakka snjallt, til að tjalda, elda úti og velja leiðir í náttúrunni. Þú færð tækifæri til að prófa búnaðinn þinn í öruggu og skipulögðu umhverfi og undirbúa þig fyrir lengri ferðir, allt undir leiðsögn reynslubolta

Dagskrá námskeiðsins:

  • Febrúar  -  grunnurinn lagður
  • Mars  - æfingarferð og nánar um tjaldferðir
  • Apríl  - dagsferð og fyrirlestur
  • Maí  - tjaldað yfir nótt
  • Júní  - Helgarferð með allt á bakinu


Skráðu þig núna! Takmarkað pláss og einstakt tækifæri til að fá heildræna þjálfun í bakpokaferðalögum í fallegu íslensku umhverfi og góðum og öruggum félagsskap.

Dagskrá

Febrúar  -  grunnurinn lagður
Miðvikudagur, 12.febrúar, kl. 19.30-21.00 á skrifstofu Útivistar.
Útilegubúnaður og pökkun
Miðvikudagur, 26.febrúar, kl. 19.30-21.00 á skrifstofu Útivistar
Matur og eldun

Mars  - æfingarferð og nánar um tjaldferðir
Laugardagur 8.mars, kl. 9 - 15.  Ganga alls um 5 - 8 km
Dagsferð - æfing með hluta útbúnaðar og eldað. 
Miðvikudagur, 12. mars, kl. 19.30 - 21.00 á skrifstofu Útivistar

               Val á tjaldstæði og tjaldstæðamenning

Apríl  - dagsferð og fyrirlestur
Laugardagur 5.apríl, kl. 9 - 16 - Dagsferð
Ganga með allt á bakinu um 6 - 8 km
Tjaldað og eldað
Miðvikudagur, 9. apríl, kl. 19.30-21.00 á skrifstofu Útivistar
Útbúnaður í poka og nánar um pökkun

Maí  - tjaldað yfir nótt
Föstudagur til laugardags, 9.-10.maí - Tjaldað yfir nótt
Brottför kl.18 á föstudegi og heim um kl.15 á laugardegi
Ganga með allt á bakinu samtals um 8 - 12 km 
Miðvikudagur, 21.maí, kl. 19  - Tjaldað yfir nótt
Brottför kl.19 á miðvikudegi og komin í bæinn á milli kl. 7 og 9 á fimmtudegi
Ganga samtals um 2 - 5 km

Júní  - Helgarferð með allt á bakinu
Laugardagur til sunnudags, 31.maí - 1.júní - Helgarferð
Brottför kl. 9 á laugardegi og heim um kl. 16 á sunnudegi
Ganga með allt á bakinu. Gengnir um 8 - 10 km hvorn daginn 

Fararstjórar eru Íris Hrund Halldórsdóttir og Hrönn Baldursdóttir

Verð 82.000 kr.
Félagsverð 68.000 kr.

Nr.

2502N01