Afmælishátíð Útivistar - Fimmvörðuháls

Dags:

fös. 20. jún. 2025 - sun. 22. jún. 2025

Tími:

Frá Mjódd kl 17

  • Skáli

Þegar haldið er upp á stórafmæli er við hæfi að slá upp veislu og bjóða heim. Fyrir okkur í Útivist er enginn staður sem hentar betur en svæðið okkar fallega í Básum á Goðalandi. Þar hefur Útivist efnt til gönguferða og fagnaðar um Jónsmessu árum saman og nú stendur mikið til.

Aðfaranótt 21. júní er boðið upp á hina árlegu Jónsmessunæturgöngu Útivistar. Nóttin er björt, jöklar varða leiðina og á leiðinni yfir hálsinn eru ummerki eftir eldgosið árið 2010 skoðuð. Þegar komið er í Bása að lokinni göngu gefst færi á að slaka á í dásamlegu umhverfi eftir útiveru næturinnar.

Þeir sem vilja taka því heldur rólegar geta gist á leiðinni í Fimmvörðuskála og rölt niður í hátíðahöldin í Básum daginn eftir.

Ef fólk hefur krafta til er á laugardeginum boðið upp á dagsgöngur í Básum við allra hæfi, bæði stuttar og fjölskylduvænar, sem og  lengri ferðir. M.a. verður boðið upp á skutl að Gígjökli og að ganga með lokaáfanga raðgöngunnar ´Að heiman og heim´ aftur til baka heim í Bása.

Á laugardagskvöldinu tekur svo margrómuð Útivistargleðin völdin þegar allir hittast, slegið er upp afmælisgrillveislu og varðeldi. 

Í þessari Jónsmessuferð yfir Fimmvörðuháls er farið með rútu frá Reykjavík og gist er í skálum.  Brottför er kl 17:00

Ef pantað er fyrir 1. apríl er 15% afsláttur. Verð fyrir félagsmenn verður þá 41.650,-

Verð 51.000 kr.
Félagsverð 41.650 kr.

Nr.

2504H01B
  • Suðurland