Um Jónsmessuhelgina er mikið um að vera á Fimmvörðuhálsi og í Básum. Þá er hin árlega Jónsmessuganga Útivistar yfir Fimmvörðuháls. Þessi ferð er einn af hápunktunum í starfi Útivistar ár hvert og allt kapp lagt á að gera hana ánægjulega fyrir alla þátttakendur.
Lagt verður af stað frá Reykjavík seinni part föstudags og gengið yfir Hálsinn um nóttina. Á leiðinni verður stoppað á völdum stöðum og boðið upp á hressingu. Í dögun á laugardegi koma göngumenn niður í Bása þar sem tími gefst til að hvílast um stund. Um kvöldið verður slegið upp grillveislu og kvöldvöku þar sem Útivistargleðin ríkir.
Allur farangur annað en dagsnesti og nauðsynlegur fatnaður verður fluttur frá BSÍ í Bása.
Tilhögun ferðar - Fimmvörðuháls
Lagt er af stað frá Mjódd (sunnan við bíóið og vestan við Breiðholtskirkju) á föstudagskvöldi kl. 17:00 og 18:00. Ekið er austur að Skógum, en gangan hefst við Skógafoss. Gengið er upp með Skógaánni sem skartar fjölda gullfallegra fossa. Fossarnir í ánni eru á milli 30 og 40 talsins. Farið er yfir ána á göngubrú. Efst á Fimmvörðuhálsinum er skáli Útivistar og þar er stoppað til að fá hressingu fyrir síðari áfanga göngunnar.
Stuttan spöl norðan við Fimmvörðuskála eru tvö nýjustu fjöll landsins, þeir bræður Magni og Móði. Hver man ekki eftir túristagosinu vorið 2010 þegar þeir félagar mynduðust? Gengið er upp á Magna og horft yfir splunkunýtt apalhraunið sem enn rýkur úr. Það er einstök tilfinning að standa á eldfjallinu og finna hve jörðin er volg undir iljunum.
Áfram er haldið í norður og fljótlega blasir Fjallabak við í morgunbirtunni. Gengið er fram á Heiðarhornið en þaðan sést stórkostleg náttúra hvert sem litið er. Síðasti áfangi göngunnar er niður í Strákagil og þaðan heim í Bása þar sem notalegur svefnpokinn bíður þreyttra göngumanna.
Á völdum stöðum á leiðinni er göngumönnum boðið upp á hressingu, sem ævinlega er tekið fegins hendi.
Heimferð á sunnudegi
Frá Básum er farið með rútum um kl. 13:00 á sunnudegi. Staðkunnugir fararstjórar frá Útivist sjá um leiðsögn í rútunum á heimleiðinni. Þar eru fjölmörg náttúruundur sem vert er að skoða. Á heimleiðinni er tekið stutt kaffistopp á Hvolsvelli. Áætluð koma til Reykjavíkur er á milli kl. 18:00 og 19:00.
Básar
Veðrið í Básum