Sveinstindur - Skælingar Fullbókað

Dags:

mið. 24. júl. 2024 - lau. 27. júl. 2024

Brottför:

Kl. 08:00 frá Mjódd

  • Skáli
Þessi viðburður er liðinn.

Sendið póst á utivist@utivist.is til að ara á biðlista. 

Þessi leið er ein helsta skrautfjöður Útivistar. Ferðin hefst með göngu á Sveinstind. Útsýnið yfir hinn margrómaða Langasjó, sem kúrir upp við Vatnajökul, er hreint ólýsanlegt. Í góðu skyggni má líta yfir bróðurpart hálendis Íslands. Leiðin liggur svo um fáfarnar slóðir, söndugar og mosavaxnar, meðfram Skaftá og um leynistigu með Uxatindum og fram grösuga Skælinga. Ganga á Gjátind og um sjálfa Eldgjá er góður lokakafli á þessari margbreytilegu göngu sem lýkur í Hólaskjóli. Ferðirnar eru trússferðir. Farangur er fluttur á milli náttstaða, svo að þátttakendur þurfa aðeins að bera bakpoka með nesti og hlífðarfötum.

Innifalið er rúta, fararstjórn, skálagisting og grillveisla í lok ferðar.

Fararstjóri er Steinar Sólveigarson

Ferðalýsing

Félagsverð 92.000 kr.

Nr.

2407L16