Dags:
lau. 14. des. 2024 - lau. 7. des. 2024
Brottför:
Þessi viðburður er liðinn.
Strandganga í fjórum áföngum frá Mógilsá að Gróttu 2
Ferð 2: Leirvogstunga - Geldinganeseiði - gönguvegalengd um 10 km
Komið er á eigin bílum og þátttakendur sjá um að selflytja bílstjóra milli upphafs- og lokastaðar hverrar göngu. Sagt frá ýmsu sem fyrir augu ber á leiðinni, náttúrunni, sögum, þjóðsögum sem tengjast svæðunum og goðsögum sem tengjast þessum árshluta.Annar göngudagur í öðru kvartili, 14.desember, kl. 9.30 - 14 (gangan sjálf hefst kl.10)
Birting 9.57
Sólarupprás 11.15
Sólarlag 15.30
Myrkur 16.48
Háfjara 11.33
Flóð 17.36
Mæting kl. 9.30 á endastöð göngunnar og sameinast í bíla sem keyra að upphafsstað göngunnar.
Frá Leirvogstungu er farið yfir litla brú á Köldukvísl og Varmá, út á Skipaþingshól og með ströndinni eftir Leiruvogi, um Blikastaðanes, Yfir brú á Úlfarsá og að Geldinganeseiði.
Eftir gönguna og léttar teygjur heldur hver sína leið nema þau sem skutlast með bílstjóra að upphafsstað göngunnar. Því er lokið um eða fyrir kl.14.
Fararstjóri: Hrönn Baldursdóttir
Verð 6.500 kr.
Félagsverð 4.500 kr.