Dags:
fös. 20. jún. 2025 - sun. 22. jún. 2025
Þegar haldið er upp á stórafmæli er við hæfi að slá upp veislu og bjóða heim. Fyrir okkur í Útivist er enginn staður sem hentar betur en svæðið okkar fallega í Básum á Goðalandi. Þar hefur Útivist efnt til gönguferða og fagnaðar um Jónsmessu árum saman og nú stendur mikið til.
Á föstudagskvöldi komum við okkur inn í Bása. Þau sem ekki hafa tök á að keyra alla leið geta tekið rútu sem verður til taks við Nauthúsaá um kl 20:00. Einnig er möguleiki að fá far með rútu alla leið frá Reykjavík og er brottför þá kl 17:00
Gist er í skála Útivistar tvær nætur.
Á laugardeginum boðið upp á dagsgöngur í Básum við allra hæfi, bæði stuttar og fjölskylduvænar, sem og lengri ferðir. M.a. verður boðið upp á skutl að Gígjökli og að ganga með lokaáfanga raðgöngunnar ´Að heiman og heim´ aftur til baka heim í Bása.
Á laugardagskvöldinu tekur svo margrómuð Útivistargleðin völdin þegar allir hittast, slegið er upp afmælisgrillveislu og varðeldi.
Ef pantað er fyrir 1. apríl er 15% afsláttur. Verð fyrir félagsmenn verður þá 39.100,-
Verð 48.450 kr.
Félagsverð 39.100 kr.