Horn í horn II - frá Snæfelli að Fjórðungsöldu

Dags:

fös. 18. júl. 2025 - fös. 25. júl. 2025

Brottför:

  • Tjald

Nú er komið að öðrum legg í Horn í Horn leiðangrinum sem hófst síðasta sumar.  Að þessu sinni verður gengið í 7 gönguáföngum frá Snæfelli og um hraun og sanda allt austur að Fjórðungsöldu við Sprengisandsleið.  

Við tökum rútu frá Reykjavík 18. júlí og tjöldum í Snæfelli. Frá Snæfelli er haldið að stíflu við Kárahnjúka, svo er haldið um Þríhyrningsfjallgarð og Grænavatn í norðaustur að brúnni yfir Kreppu.  Gengið austan Jökulsár að brúnni við Upptyppinga og svo sunnan Vaðöldu framhjá Holuhrauni.   Farið yfir hraunið milli Trölladyngju og Þríhyrnings og svo stefnt í suðvestur að Hitulaug. Síðasta göngudaginn, 25. júlí  er haldið beint í vestur og endað við sunnanvert Fjórðungsvatn. Þaðan tökum við rútuna aftur til Reykjavíkur. Ferðin er trússuð og stefnt að því að hitta bílinn og búnaðinn öll kvöld. Gist er í eigin tjöldum og er mælt með 4. árstíða tjöldum.

Kynningarfundur verður í janúar og verður auglýstur síðar. Verð er væntanlegt.

Fararstjóri er Hákon Gunnarsson

Nr.

2507L13