Víknaslóðir fyrir konur

Dags:

mið. 6. ágú. 2025 - lau. 9. ágú. 2025

Tími:

Brottför kl. 9:00 Þáttakendur koma sér sjálfir á Borgarfjörð eystri

Víknaslóðir - kvennaferð

Upplifðu kyrrláta fegurð Víknaslóða – Hægferð fyrir þá sem vilja njóta í rólegheitum

Víknaslóðir eru margrómað gönguland þar sem óviðjafnanleg náttúrufegurð og friðsæld sameinast í einstaka upplifun. Þetta er ferð fyrir þá sem vilja draga andann djúpt, ganga með hóflegu tempói og njóta augnabliksins. Gangan hefst og endar í Bakkagerði í Borgarfirði eystri, þar sem þú getur dregið þig í hlé frá ys og þys hversdagsins og leyft þér að sökkva inn í einstaka náttúru Austfjarða. Við köllum þetta hægferð þar sem dagleiðirnar eru vel viðráðanlegar – lengstu dagleiðirnar um 15 km – og mesta hækkunin er 920 metrar. Ferðin er sérstaklega vel til þess fallin fyrir konur sem vilja sameina útivist og afslöppun í fallegu umhverfi. Þetta er ekki kapphlaup heldur ferð þar sem áhersla er lögð á að skoða, upplifa og njóta. Vertu með í ferð sem fyllir hugann ró og hjartað gleði á þessum einstaka hluta Íslands. Kynntu þér kyrrláta en stórbrotnu Víknaslóðir – þú munt ekki verða svikin.

Fararstjóri: Íris Hrund Halldórsdóttir

Þáttakendur koma sér sjálir á Borgarfjörð eystri

  1. ágúst: Borgarfjörður eystri – Breiðuvík.

Gengið er um Brúnavíkurskarð í Brúnavík og þaðan um Súluskarð og Kjólsvíkurvarp til Breiðuvíkur. Brúnavík er næsta vík sunnan Borgarfjarðar. Þar þóttu búsetuskilyrði góð áður fyrr en hún fór í eyði árið 1944. Í fjörunni eru fallegir líparítklettar sem vert er að skoða áður en haldið er áfram til Breiðuvíkur. Breiðuvík er landnámsjörð og fór í eyði árið 1947. Hún er vel gróin og umkringd fallegum líparítfjöllum. Gist í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs í Breiðuvík.

Vegalengd 15km. Hækkun um 850 metrar. Göngutími 5-7klst.

  1. ágúst: Breiðuvík – Húsavík.

Gengið er til vesturs úr Breiðuvík í dalverpi sem liggur undir Hvítafjalli, Hvítuhnjúkum og Hvítserki. Þaðan er fallegt útsýni yfir Gæsavötn. Þegar beygt er til suðurs í átt til Húsavíkur er á vinstri hönd hinn sérkennilegi Hvítserkur, með sína dökku bergganga, sem margir hafa eflaust séð á myndum. Skáli Ferðafélags Fljótsdalshéraðs sem gist er í, stendur innst í víkinni. Út við sjó stendur Húsavíkurkirkja, byggð 1937, en kirkjustaðurinn Húsavík var metin dýrasta jörð á austurlandi á öldum áður.

Vegalengd 15 km. Göngutími 4-6 klst. Hækkun 580 m.

  1. ágúst: Húsavík – Loðmundarfjörður.

Gengið er yfir Nesháls í átt til Loðmundarfjarðar. Þaðan er gott útsýni yfir fjörðinn og allt til Dalatanga ef skyggni er gott. Haldið er áfram göngu inn allan Loðmundarfjörð sem er fallega gróinn og má þar finna sjaldgæfar plöntur svo sem bláklukkulyng og gullkoll. Loðmundarfjörður er talinn hafa verið í byggð mest allan tíma Íslandsbyggðar en fór endanlega í eyði árið 1973. Gist er í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs á Klyppsstað.

Vegalengd 13 km. Göngutími 5-5 klst. Hækkun 510 m.

  1. ágúst: Loðmundarfjörður – Borgarfjörður um Kækjuskörð.

Gengið er 2km til baka frá Klyppsstað að Stakkahlíð og þaðan í norður eftir jeppavegi að Fitjum. Frá Fitjum liggur leiðin um Orustukamb, þar sem fundist hafa merkilegir steingervingar, síðan um Kækjuskörð og Kækjudal. Í Kækjudal stendur Kirkjusteinn, sem talinn er vera álfakirkja samkvæmt þjóðtrú. Göngunni líkur svo við Lambadalsá í Borgarfirði.

Vegalengd 15 km. Göngutími 5-7 klst. Hækkun 920 m.

Verð 134.000 kr.
Félagsverð 120.000 kr.

Nr.

2508L01