Fimmvörðuháls - Hraðferð

Dags:

lau. 19. júl. 2025 - sun. 20. júl. 2025

Brottför:

frá Mjódd kl. 09:00

  • Skáli

Ganga yfir Fimmvörðuháls

Hálsinn á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls nefnist Fimmvörðuháls. Á síðari árum hefur leiðin um hálsinn, á milli Skóga og Þórsmerkur verið ein af vinsælustu gönguleiðum hér á landi. Leiðin sem farin er liggur frá Skógum og upp meðfram Skógaheiði og efst á hálsinum er skáli Útivistar, Fimmvörðuskáli. Frá Skógum upp að Fimmvörðuskála er um 5-6 klst ganga. Gengið er frá sjávarmáli og upp í 1100 m hæð.
Frá Fimmvörðuskála er víðsýnt í austur til Mýrdals og niður eftir hálsnium.
Frá skálanum er gengið um jökulfannir og ása, gegnum gosstöðvarnar og niður Bröttufönn.
Af norðanverðum hálsinum, í góðu skyggni er ógleymanlegt útsýni yfir Emstrur, Torfajökulssvæðið og yfir Landmannaafrétt. Frá Bröttufönn er haldið um Heljarkamb og farið eftir Kattahryggjum og niður í Strákagil og í Bása þar sem göngunni lýkur. Búast má við að gangan taki í heild sinni um 10 klst. Heildarvegalengd er um 25 km.

Hálsinn genginn á einum degi

Í þessari ferð er leiðin gengin á einum degi. Lagt er af stað á laugardagsmorgni með rútu frá Mjódd (sunnan við bíóið og vestan við Breiðholtskirkju kl. 08:00 og keyrt að Skógum þar sem gangan hefst. Gengið er yfir hálsinn og niður í Bása þar sem hópurinn gistir í skála. Á sunnudegi gefst tækifæri til stuttra gönguferða um fallegt svæði í nágrenni skálans en rútan sem keyrir hópinn aftur í Mjódd leggur af stað um kl. 12:00.

 

Farangur fluttur í Bása

Ferðalangar þurfa að huga vel að því hvaða farangur þeir hyggjast nota á Fimmvörðuháls leiðinni og hvað á að nota þegar inn í Bása er komið. Innifalið í ferðinni er sending á einum pakka í Bása á hvern þátttakanda. Merkja þarf farangur vel. Nauðsynlegt er að nafn eiganda pakka komi fram sem og Útivist í Básum.

 

Drög að útbúnaðarlista

Full ástæða er til að benda fólki á að búa sig vel. Á Fimmvörðuhálsi er allra veðra von og því áríðandi að hafa góð hlífðarföt meðferðis. Góðir gönguskór eru mikilvægir sem og göngubuxur úr efni sem þornar fljótt og heldur hita þó að blotni. Gallabuxur eða slíkur fatnaður er ekki æskilegur í gönguferðum.

 

Hér fara drög að útbúnaðarlista sem miðast við göngu yfir Fimmvörðuháls:

  • Gönguskór
  • Göngusokkar
  • Auka sokkar
  • Legghlífar
  • Húfa
  • Vettlingar
  • Göngubuxur
  • Peysa (ull eða flís)
  • Nærföt úr ull eða ullarblöndu
  • Auka peysa
  • Vatns- og vindheldur hlífðarklæðnaður
  • Allir ættu að vera með nesti svo sem samlokur eða flatkökur, heitt og kalt vatn og ágætt er að hafa meðferðis orkuríkt nasl

Heimferð á sunnudag

Frá Básum er farið með rútu kl. 12:00 á sunnudag. Tekið er stutt kaffistopp á Hvolsvelli. Áætluð heimkoma er á milli kl. 16:00 og 17:00.

 

MATUR OG NÆRING

Mataræði er eitt af undirstöðuatriðum ánægjulegrar ferðar.  Nauðsynlegt er að huga vel að því hvaða matar skal neytt í ferðinn.  Mikill munur er á því sem borðað er á morgnana og því sem neytt er á kvöldin að göngu lokinni.

Morgunverður:
Á morgnana er gott að neyta matar sem er ríkur af kolvetnum, s.s. gróft korn og ávextir.  Einnig er gott að neyta próteinríkrar fæðu, en prótein fást úr kjöti, fiski, eggjum og mjólkurvörum. Dæmi um morgunmat er súrmjólk með 100-150 gr af músli eða hafragrautur, hrökkbrauð með smjöri og osti og svo er ágætt að drekka te eða kaffi.

Hádegismatur:
Í hádegismat er gott að borða flatbrauð eða gróft brauð með kæfu eða osti, heita pakkasúpu og orkuríkt nasl á eftir.

Kvöldverður:
Á kvöldin er gott að borða fituríka fæðu, því þá hefur líkaminn nægan tíma til að melta fæðuna. Vinsælt er að nota frostþurrkaðan mat sem fæst í útilífsverslunum.  Þessi matur er frekar dýr og því má einnig mæla með pasta og sósu, sem gjarnan má betrumbæta með rjóma/rjómaosti.  Eftir kvöldmatinn er gott að hita vatn í kakó og borða kex eða súkkulaði með.

Snarl yfir daginn:
Gott er að hafa eitthvert nasl til að grípa í  yfir daginn, svo sem harðfisk, rúsínur, þurrkaða ávexti, hnetur, súkkulaði eða kex. 

Drykkir:
Nauðsynlegt er að hafa nóg af vatni til að drekka yfir daginn. Ef vitað er um læki á gönguleiðinni er óþarfi að bera allt vatn með sér að heiman, heldur má fylla á vatnsílát í lækjunum. Gætið þess að drekka jafnt og þétt yfir daginn.
Nauðsynlegt er að hafa með sér heitt vatn á brúsa, sérstaklega ef kalt er eða hráslagalegt. Kakó er mjög góður hitagjafi en einnig er hægt að hafa með sér kaffi, te eða pakkasúpur.

Gætið þess að borða vel kvöldið fyrir göngu!


Skálinn á Fimmvörðuhálsi
Skálarnir í Básum
Veðrið í Básum. 



Verð 57.000 kr.
Félagsverð 46.000 kr.

Nr.

2507H02