Dags:
lau. 19. júl. 2025
Brottför:
Lagt af stað frá Mjódd kl 8:00
Fimmvörðuháls - dagsferð
Í þessari ferð er leiðin gengin á einum degi. Lagt er af stað á laugardagsmorgni með rútu frá Mjódd (sunnan við bíóið og vestan við Breiðholtskirkju kl. 08:00 og keyrt að Skógum þar sem gangan hefst. Gengið er yfir hálsinn og niður í Bása þar sem rútan bíður og rekur fferðalanga beint aftur í bæinn.
Ganga yfir Fimmvörðuháls
Hálsinn á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls nefnist Fimmvörðuháls. Á síðari árum hefur leiðin um hálsinn, á milli Skóga og Þórsmerkur verið ein af vinsælustu gönguleiðum hér á landi. Leiðin sem farin er liggur frá Skógum og upp meðfram Skógaheiði og efst á hálsinum er skáli Útivistar, Fimmvörðuskáli. Frá Skógum upp að Fimmvörðuskála er um 5-6 klst ganga. Gengið er frá sjávarmáli og upp í 1100 m hæð.
Frá Fimmvörðuskála er víðsýnt í austur til Mýrdals og niður eftir hálsnium.
Frá skálanum er gengið um jökulfannir og ása, gegnum gosstöðvarnar og niður Bröttufönn.
Af norðanverðum hálsinum, í góðu skyggni er ógleymanlegt útsýni yfir Emstrur, Torfajökulssvæðið og yfir Landmannaafrétt. Frá Bröttufönn er haldið um Heljarkamb og farið eftir Kattahryggjum og niður í Strákagil og í Bása þar sem göngunni lýkur. Búast má við að gangan taki í heild sinni um 10 klst. Heildarvegalengd er um 25 km.
Drög að útbúnaðarlista
Full ástæða er til að benda fólki á að búa sig vel. Á Fimmvörðuhálsi er allra veðra von og því áríðandi að hafa góð hlífðarföt meðferðis. Góðir gönguskór eru mikilvægir sem og göngubuxur úr efni sem þornar fljótt og heldur hita þó að blotni. Gallabuxur eða slíkur fatnaður er ekki æskilegur í gönguferðum.
Hér fara drög að útbúnaðarlista sem miðast við göngu yfir Fimmvörðuháls:
- Gönguskór
- Göngusokkar
- Auka sokkar
- Legghlífar
- Húfa
- Vettlingar
- Göngubuxur
- Peysa (ull eða flís)
- Nærföt úr ull eða ullarblöndu
- Auka peysa
- Vatns- og vindheldur hlífðarklæðnaður
- Allir ættu að vera með nesti svo sem samlokur eða flatkökur, heitt og kalt vatn og ágætt er að hafa meðferðis orkuríkt nasl
Verð 25.000 kr.
Félagsverð 19.900 kr.