Raðganga um Reykjaveg 2027

11. nóvember 2026

Raðgöngur Útivistar hafa verið afar vinsælar síðustu ár. Nú stendur Útivist fyrir raðgöngu um hina skemmtilegu leið um Reykjaveginn á fyrri hluta árs 2027. Gangan er í 7 hlutum, fyrsta gangan er 27 febrúar og sú síðasta 5. júní.

Þátttakendur fara ýmist á eigin bílum eða með rútu eftir aðstæðum og hað hentar á hverjum legg. Hægt er að koma í hvern legg fyrir sig en félögum í Úitivist býðst að kaupa alla leggina með ríflega 30% afslætti.

Fullt verð fyrir félaga er 57.300 en afsláttarverð þegar allar ferðirnar eru teknar er aðeins 39.900 Smellið hér til að fara í allar göngurnar

Göngurnar eru:

27. feb Reykjanesviti – Golfskálinn í Grindavík
13. mars Golfskálinn í Grindavík - Leirdalur
3. apríl Leirdalur - Sogin
17. apríl Sogin - Kaldársel
8.maí Kaldársel–Bláfjallaskáli
22. maí Bláfjallaskáli–Hellisheiðarvirkjun
5. júní Hellisheiðarvirkjun - Nesjavellir