Dags:
fös. 22. okt. 2027 - mán. 25. okt. 2027
Brottför:
Frá Mjódd kl. 09:00
Fjölskylduferð í Bása á vetrarfrítíma skóla. Farið með rútu frá Reykjavík kl. 9.00 á fimmtudagsmorgni og komið til baka um kl. 18 á mánudeginum.
Dagur 1: Þegar búið er að koma sér fyrir er farið í könnunarferð og leiki um svæðið og eftir kvöldmat er spilakvöld.
Dagur 2: Hluta dagsins verður varið í föndur, þrautir og leiki inni við og síðan haldið í könnunarferð á slóðir álfa og útilegumanna. Eftir kvöldmat er himininn kannaður og sykurpúðar grillaðir við eldstæðið utandyra.
Dagur 3: Farið verður í ratleik á vel völdum stöðum áður en haldið er til byggða upp úr hádegi.
Verð 93.000 kr.
Félagsverð 79.000 kr.