Dags:
mán. 26. júl. 2027 - fim. 29. júl. 2027
Brottför:
Frá Bolungarvík kl.
Hesteyri-Fljótavík
Leiðin á milli Hesteyrar og Fljótavíkur er lítið merkt og reynir aðeins á uppstigið í gegnum móann. Leiðin er um 10 km löng og er hækkunin aflíðandi að mestu. Rétt undir heiðinni fer leiðin í brattar skriður sem eru þó ekki farartálmi en göngustafur er ansi þægilegur hér. Heiðin á milli fjarðanna er grýtt en stutt, háar vörður marka leiðina og slóði verður greinilegur á leiðinni niður í Fljótavík. Gist á Glúmsstöðum þar sem er fínasta tjaldstæði með kamar. Hæsti punktur er í um 480m á þessari leið, ekkert vað en nokkrir snjóskaflar.
Fljótavík-Aðalvík
Hér er byrjað á að ganga í gegnum votlendi fyrstu 5 km leiðarinnar sem er þó á jafnsléttu. Við tekur svo upphækkun sem fer í rúma 470m. hys. Uppgangan er ekki tæknilega erfið og er slóðinn vel greinilegur alla leið upp á topp. Af toppnum er víðsýnt og þá einna helst á herstöðina á Straumnesi. Leiðin niður er tekin í tveim hollum. Fyrsti leggur niður er þægilegur og eru snjóskaflar á leiðinni þar. Eftir Tunguheiði kemur svo seinni hjallinn niður og er hann talsvert brattari á kafla, hægt og rólega er það enginn farartálmi. Þegar komið er niður í Aðalvík er bílveginum fylgt í tjaldstað þar sem er kamar. Heildar vegalengd er um 12 km, ekkert vað.
Straumnesfjall
Langur göngutúr eða um 20 km fram og til baka. Leiðin er öll á bílvegi og því býsna þægileg ganga þó að upphækkunin sé um 400m. hys.
Hér er fínt að fara af stað í seinna lagi svo morgunþokan sé búin að skila sínu.
Aðalvík-Hesteyri
Gengið yfir fjöruna í Aðalvík að fyrsta og eina vaði ferðarinnar sem er yfir í Stakkadal. Eftir vaðið er fylgt vel greinilegum slóða næstu 10 km yfir í Hesteyri. Undirlendið er gott til að ganga og gengur því vel að fara þennan spöl. Hér er hæsti punktur í Hesteyrarskarði ekki nema um 270m. hys sem er nú ekkert til að tala um eftir fyrri daga. Vegalengdin er um 12 km sem er farið þennan dag en það má bæta við um 4 km með heimsókn í rústir Hvalstöðvarinnar á Stekkeyri.
Fararstjóri er Steinar Sólveigarson sem leitt hefur frábærar ferðir á Hornstrandir.
Ef ferðalangar vilja æfa sig í tjaldferðum og læra til verka er tilvalið að fara á námskeiðið „Með allt á bakinu“ í vor.
Fararstjóri er Steinar Sólveigarson