Kringum Langasjó

Dags:

lau. 24. júl. 2027 - þri. 27. júl. 2027

Brottför:

Frá Mjódd kl 8:00

  • Tjald

Farið með rútu frá Mjódd og upp að Langasjó. Gengið í skála og komið sér fyrir
Vegalengd um 5km, hækkun eftir veðri og aðstæðum

Gengið frá skála og haldið norðaustur eftir skemmtilegri og afar fallegri leið í gegnum og með Fagrafjallgarði að tjaldstað við enda Langasjós.
Vegalengd, ca 25-30km, Hækkun 6-700m

Gengið úr tjaldstæði og fyrir enda vatnsins og svo undir hlíðum Breiðbaks suður undir mitt vatnið þar sem valinn verður huggulegur tjaldstaður.
Vegalengd 25 – 30km, hækkun 2-300m

Síðasta daginn er gengið áfram undir Breiðbaki að suðurenda vatnsins þar sem rútan sækir okkur.
Vegalengd, 10-12km, óveruleg hækkun

Verð 63.000 kr.
Félagsverð 49.000 kr.

Nr.

2707L10