Dags:
lau. 28. ágú. 2027
Brottför:
Með rútu frá Mjódd kl. 7:00
Jarlhettur er tilkomumikil fjallaröð sem ber í Langjökul þegar horft er í norður frá Gullfossi. Sú tignarlegasta ber nafnið Stóra Jarlhetta og einnig er hún kölluð Tröllhetta. Gengið er frá Hagavatnsveginum í norður að Stóru Jarlhettu og austurhliðin klifinn. Staldrað verður við á toppnum því þar er gott að njóta útsýnis og nesta sig ef veður leyfir. Af fjallinu er víðsýnt til flestra átta og gott pláss til að athafna sig. Af toppnum er haldið niður í Jarlhettudalinn og Jarlhettukvíslinni fylgt niður að Einifelli, þar sem rútan bíður okkar við skála F.Í.
Vegalengd um 13 km. Hækkun 600 m. Göngutími 6 – 7 tímar.
Verð 24.900 kr.
Félagsverð 19.900 kr.