Kálfstindar og Laugarvatnshellar

Dags:

lau. 14. ágú. 2027

Brottför:

Eigin bílar.  Gengið frá Reyðarbarmi kl 9:00

Kálfstindar eru í grennd við Þingvelli, norðan Lyngdalsheiðar. Merkileg fjöll sem fáir ganga á þó þau séu ekki ýkja langt frá höfuðborginni. Haldið verður frá Reyðarbarmi meðfram Kálfstindum milli hrauns og hlíðar að Flosaskarði þar sem lagt verður á brattann. Til baka verður farið um Flosaskarð niður á Laugarvatnsvelli. Um skarðið á Flosi í Njálssögu að hafa riðið með fylgdarlið sitt til þess að forðast fyrirsát Kára Sölmundarsonar.  Skoðaður verður hellir við Vellina sem búið var í til skamms tíma á fyrri hluta síðustu aldar. Við fáum kaffisopa og sérstaka skoðunarferð um hellinn. Skoðunarferðin er innfalin í verðinu. Að henni lokinni röltum við að bílunum aftur. Vegalengd 10-12 km. Hækkun 600. Göngutími 4-5 klst. Hellisferðin bætist svo við tímann.

Farið er á eigin bílum. Hist á bílastæði við Reyðarbarm. Staðsetning á google: https://maps.app.goo.gl/yjh1o9WCYYgDKHyq9

Upplýsingar um hellinn er á https://cavesoflaugarvatn.is/

Nr.

2708D01