Sveifluháls endilangur með Fjallabralli

Dags:

lau. 29. maí 2027

Tími:

Hist við veginn inn að Vigdísarvöllum. Rúta til baka í bíla eftir göngu.

Sveifluhálsinn endilangur með Fjallabralli

Laugardaginn 29. maí verður gengið um Sveifluháls, um 15 km langan og allt að 397 metra háan móbergshrygg vestan við Kleifarvatn í Reykjanesfólkvangi. Sveifluháls er einstaklega fallegt og fjölbreytt göngusvæði þar sem skiptast á litskrúðugar móbergsmyndanir, brattar hlíðar og grýttir hryggir. Á leiðinni gefst stórbrotið útsýni yfir Kleifarvatn, Krýsuvíkursvæðið og litríkt landslag Reykjanesskagans.

Gangan hefst við veginn inn að Vigdísarvöllum. Þaðan liggur leiðin upp á hálsinn sjálfan og áfram um fjölbreytt landslag hans. Meðal hæstu tinda á Sveifluhálsi eru Hellutindar, Stapatindar og Miðdegishnúkur (Hádegishnúkur). Reiknað er með að allur hópurinn gangi á Hellutinda og Stapatinda, en þeim sem vilja verður einnig boðið að ganga á Miðdegishnúk, ef veður og aðstæður leyfa. Að tindunum loknum liggur leiðin áfram fram hjá Arnarvatni og þaðan niður að Seltúni, þar sem rútan bíður okkar við lok göngunnar.

Gönguleiðin er grýtt og á köflum nokkuð brött og því hvetja fararstjórar þátttakendur til að vera í góðum gönguskóm með góðu gripi og hafa göngustafi meðferðis.

Vegalengd: Um 13–14 km

Heildarhækkun: Um 600 metrar  Göngutími: Um 6–6,5 klst.  Erfiðleikastig: Tveir skór

Við hittumst í Mjódd, sunnan við gömlu Sambíóin og vestan við Breiðholtskirkju. Sjá staðsetningu hér. Lagt verður af stað með rútu frá Mjódd stundvíslega kl. 9:00, svo við biðjum alla um að mæta tímanlega.

Reiknað er með tveimur nestisstoppum á leiðinni. Gott er að hafa með sér nægt nesti og eitthvað orkuríkt til að grípa í á göngunni, auk þess að muna eftir nægu drykkjarvatni.

Við mælum einnig með að hafa heitan drykk á brúsa og hlýtt aukalag til að fara í þegar stoppað er, enda getur verið kalt og vindasamt uppi á hálsinum þótt komið sé fram á vor.

Fararstjórar: Hanna Guðmundsdóttir, Fríða Brá Pálsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.

Verð 13.900 kr.
Félagsverð 9.900 kr.

Nr.

2705D06
  • Suðvesturland