Dags:
lau. 15. maí 2027
Brottför:
Hist á Kaldadalsvegi við Sandkluftavatn kl 9:30
Hér er gengið á hið fornfræga Ármannsfell ofan Þingvalla. Farið er á eigin bílum.
Gangan hefst á Kaldadalsvegi rétt norðan við Sandkluftavatn en þaðan er nokkuð auðveld leið að hæsta tindi fjallsins. Fjallið dregur nafn sitt af landnámsmanninum og hálftröllinu Ármanni Dalmannssyni. Sagnir herma að þessi verndarvættur fjallsins hafi stýrt kappglímu þursa á Hofmannaflöt undir Meyjarsæti og „dáið“ inn í fjallið.
Vegalengd 10km. Hækkun 550m.
Ferðin er vinaferð. Félagar í Útivist geta boðið vini með að kostnaðarlausu. Takið fram nafn og kennitölu vinarins í athugasemd þegar pantað er.
Verð 9.900 kr.
Félagsverð 6.900 kr.