Dags:
lau. 20. mar. 2027
Brottför:
Með rútu frá Mjódd kl 9:00
Afmælisganga á Keili
Fyrsta gönguferð Útivistar eftir stofnun félagsins var á Keili. Á hverju ári síðan þá hefur verið farin afmælisferð á fjallið. Farið er frá Höskuldarvöllum yfir hraunið að fjallinu. Og við höldum að sjálfsögðu í hefðina og bjóðum upp á köku og kakó fyrir þátttakendur. Við verðum með varaplan ef aðstæður á Reykjanesi eða veður krefjast þess og förum þá á annað fjall eða á sunnudegi. Farið með rútu kl 9. frá Mjódd.
Verð 13.900 kr.
Félagsverð 9.900 kr.