Strandganga í fjórum áföngum Leirvogstunga - Geldinganeseiði 2. áfangi

Dags:

lau. 14. des. 2024 - lau. 7. des. 2024

Brottför:

Strandganga í fjórum áföngum frá Mógilsá að Gróttu 2

Ferð 2: Leirvogstunga - Geldinganeseiði - gönguvegalengd um 10 km

Komið er á eigin bílum og þátttakendur sjá um að selflytja bílstjóra milli upphafs- og lokastaðar hverrar göngu. Sagt frá ýmsu sem fyrir augu ber á leiðinni, náttúrunni, sögum, þjóðsögum sem tengjast svæðunum og goðsögum sem tengjast þessum árshluta.Annar göngudagur í öðru kvartili, 14.desember, kl. 9.30 - 14  (gangan sjálf hefst kl.10)            

Birting                      9.57
Sólarupprás          11.15
Sólarlag                 15.30
Myrkur                    16.48
Háfjara                   11.33
Flóð                        17.36

Mæting kl. 9.30 á endastöð göngunnar og sameinast í bíla sem keyra að upphafsstað göngunnar.

Frá Leirvogstungu er farið yfir litla brú á Köldukvísl og Varmá, út á Skipaþingshól og með ströndinni eftir Leiruvogi, um Blikastaðanes, Yfir brú á Úlfarsá og að Geldinganeseiði. 

Eftir gönguna og léttar teygjur heldur hver sína leið nema þau sem skutlast með bílstjóra að upphafsstað göngunnar. Því er lokið um eða fyrir kl.14.  

Fararstjóri:  Hrönn Baldursdóttir

Verð 6.500 kr.
Félagsverð 4.500 kr.

Nr.

2412D02