Dags:
lau. 26. sep. 2026
Brottför:
Farið er á eigin bílum og hist við lokastað göngu á Gullfossi kl 9:00
Þá er komið að áttunda og síðasta legg á Kóngsveginum sem gengið verður næstkomandi laugardag 26. september. Að þessu sinni ætlum við að halda áfram þar sem frá var horfið við Geysi.
Við ætlum að hittast við Hádegismóa og sameinast í bíla. Reikna má með að við leggjum af stað frá Hádegismóum kl. 08:00 svo endilega mætið tímanlega. Frá Hádegismóum keyrum við að Gullfoss þar sem við skiljum hluta af bílaflotanum eftir en hinir bílarnir ferja mannskapinn að upphafsstað göngu við bílastæði hjá Geysi. Því miður eru þetta bæði gjaldskyld bílastæði svo um að gera að reyna að sameinast sem flest í fáa bíla til að spara okkur gjaldið. Það má reikna með að við séum að hefja gönguna frá Geysi rétt fyrir klukkan 10.
Á þessum síðasta áfanga raðgöngunnar um Kóngsveg göngum við frá Geysi og yfir að Gullfoss. Sagt er að við Geysi í Haukadal hafi stór skáli verið reistur handa ríkisþingmönnum inni á miðju hverasvæðinu og að aðeins ofar bjuggu konungur og Haraldur prins í minna húsi. Þá var reist stórt tjald fyrir veisluhöld á flötinni hjá Geysi. Daginn eftir veisluhöldin hélt konungur ríðandi frá Geysi og hafi konungsfylgdin, eftir rúma klukkustundarferð, komið að fossinum. Vegurinn að fossinum hafi aðeins verið mjór troðningar eftir hesta og að farið hafi verið yfir Tungufljót á bráðabirgðabrú. Konungur á að hafa skoðað Gullfoss en haldið síðan aftur að Geysi þar sem menn náðu að hvíla sig vel áður en lagt væri í langt ferðalag næsta dag suður á bóginn að Þjórsárbrú.
Við munum ganga frá Geysi eftir reiðstígunum við sjálfa Biskupstungnabraut. Við reiknum með að finna okkur einn góðan nestisstað á leiðinni. Í tilefni þess að nú er um síðasta legg þessarar leiðar að ræða þykir okkur tilvalið að breyta aðeins að vananum í nestispásunni og henda í smá veislu! Við ræddum þetta aðeins í síðustu göngu en það kom sem sagt upp hugmynd að breyta af vananum og hafa nestið okkar svokallað pálínuboð, þ.e. að allir myndu koma með eitthvað hátíðlegt á borðið (og helst konungsvænt) og síðan sláum við upp smá veislu í tilefni af konunginum og síðasta áfanganum okkar.
Gangan dagsins er um 11 km og hækkun óveruleg. Reikna má með að við verðum komin aftur í bílana við Gullfoss eftir rúma 4 klukkutíma. Fer aðeins eftir hversu gaman verður hjá okkur í nestispásunni að þessu sinni.
Um raðgönguna um Kóngsveg 2026:
Árið 2026 verða 119 ár liðin frá ferð Friðriks áttunda konungs Danmerkur og Íslands frá Reykjavík til Þingvalla, Geysis og Gullfoss. Að því tilefni stendur Útivist fyrir raðgöngu þessa leið og verður hún farin í átta áföngum frá janúar og fram í september.
Fyrirkomulag ferðanna verður þannig að þátttakendur fara á eigin bílum og hittast við lokastað hverrar göngu. Sameinast er í bíla að upphafsstað þar sem gangan hefst.
Fararstjórar verða Hanna Guðmundsdóttir, Fríða Brá Pálsdóttir og Jóhanna Benediktsdóttir
Verð 9.000 kr.
Félagsverð 5.900 kr.