
Laugardaginn 3. október ætlum við að gera okkur glaðan dag/kvöld og fagna því að það er komið haust og góðu göngusumri að ljúka.
Við ætlum að hittast í sal Garðyrkjufélagsins, Síðumúla 1 í Reykjavík. Húsið opnar kl. 18:30 og matur verður kl. 19:30.
Tilgangurinn er að hittast og hafa gaman, ef einhver vill vera með skemmtiatriði, söngatriði eða þ.h. þá mega þeir endilega hafa samband við okkur.
Það verður happdrætti og eru vinningarnir ekki af verri endanum, t.d. gjafabréf frá Hvammsvík fyrir tvo, gjafabréf frá Laugarás lagoon fyrir tvo, super jeppaferð með South coast inn í Þórsmörk, Útivist gefur veglega vinninga, gjöf frá Fjallakofanum og fleira.
Eftir matinn verður tónlist, fólk getur spjallað og dansað ef vill.
Við munum bjóða upp á hamborgara, franskar, sósu og gos frá Plan B. Hægt er að fá vegan borgara. Aðrir drykkir eru ekki í boði en þið takið ykkar eigin drykki með ykkur.
Skráning og greiðsla fer fram hér á vefnum. Slóðin er https://www.utivist.is/ferdir-og-dagskra/vidburdur/6805/haustfagnadur-utivistar
Vinir/makar (sem eru ekki félagsmenn) eru velkomnir og er sama verð fyrir þá.
Síðasti dagur til að skrá sig er mánudagurinn 28. september.