Dags:
lau. 3. okt. 2026
Tími:
Salur Garðyrkjufélagsins, Síðumúla 1. kl. 18:30
Haustfagnaður Útivistar
Laugardaginn 3. október ætlum við að gera okkur glaðan dag/kvöld og fagna því að það er komið haust og góðu göngusumri að ljúka.
Við ætlum að hittast í sal Garðyrkjufélagsins, Síðumúla 1 í Reykjavík. Húsið opnar kl. 18:30 og matur verður kl. 19:30.
Tilgangurinn er að hittast og hafa gaman, ef einhver vill vera með skemmtiatriði, söngatriði eða þ.h. þá mega þeir endilega hafa samband við okkur.
Það verður happdrætti og eru vinningarnir ekki af verri endanum, t.d. gjafabréf frá Hvammsvík fyrir tvo, gjafabréf frá Laugarás lagoon fyrir tvo, Super Jeep ferð með Southcoast inn í Þórsmörk, Útivist gefur veglega vinninga, gjöf frá Fjallakofanum og fleira.
Eftir matinn verður tónlist, fólk getur spjallað og dansað ef vill.
Við munum bjóða upp á hamborgara, franskar, sósu og gos frá Plan B. Hægt er að fá vegan borgara. Aðrir drykkir eru ekki í boði en þið takið ykkar eigin drykki með ykkur.
Skráning fer fram á utivist.is og greitt er við skráningu.
Viðburðurinn kostar 5000 kr.
Vinir/makar (sem eru ekki félagsmenn) eru velkomnir.
Síðasti dagur til að skrá sig er mánudagurinn 28. september.
Verð 5.000 kr.
Félagsverð 5.000 kr.