Hefur þú gengið Sveinstind-Skælinga?

29. janúar 2024

Þessi leið er ein helsta skrautfjöður Útivistar. Ferðin hefst með göngu á Sveinstind. Útsýnið yfir hinn margrómaða Langasjó, sem kúrir upp við Vatnajökul, er hreint ólýsanlegt. Í góðu skyggni má líta yfir bróðurpart hálendis Íslands. Leiðin liggur svo um fáfarnar slóðir, söndugar og mosavaxnar, meðfram Skaftá og um leynistigu með Uxatindum og fram grösuga Skælinga. Ganga á Gjátind og um sjálfa Eldgjá er góður lokakafli á þessari margbreytilegu göngu sem lýkur í Hólaskjóli. Ferðirnar eru trússferðir. Farangur er fluttur á milli náttstaða, svo að þátttakendur þurfa aðeins að bera bakpoka með nesti og hlífðarfötum.

Útivist er með fjórar gönguferðir í sumar á þessa heillandi gönguleið.  Smelltu á dagsetningu til að bóka ferð!

4. - 7. júlí 2024

18. - 21 júlí 2024

24. - 27. júlí 2024

7. - 10 ágúst 2024