Hestfjall

Dags:

lau. 4. maí 2024

Brottför:

Brottför frá Mjódd kl. 9:00

Ekið er inn Sólheimaafleggjara. Gangan hefst við bæinn Vatnsnes og leiðin liggur um grösugt svæði upp í hlíðar Hestfjalls. Auðveld ganga á frekar fáfarið svæði. Mjög fallegt útsýni er af toppnum yfir suðurlandið og til fjalla norðan Þingvalla og Laugavatns. Einnig er útsýnið frábært yfir Hvítá þar sem hún rennur meðfram fjallinu að austan og sunnan og einstaklega blár liturinn á ánni nýtur sín hér. Vegalengd 10 km. Hækkun 260 m. Göngutími 5 – 6 klst. 

Brottför frá Mjódd kl. 9:00

Fararstjóri Hrönn Baldursdóttir

Verð 11.800 kr.

Nr.

2405D01