Útivistargírinn

Dags:

þri. 2. apr. 2024 - þri. 28. maí 2024

Brottför:

Kl. 18:00

Hefur þig alltaf langað til að geta gengið á fjöll og/eða taka þátt í lengri göngum en ekki látið verða af því? Þá er Útivistargírinn fyrir þig! Fjölmargir hafa tekið sín fyrstu skref í útivist og fjallgöngum með Útivistargírnum þar sem saman koma nýliðar og reynsluboltar í útivistinni.
Dagskrá Útivistargírsins vorið 2024 hefst 2. apríl og stendur til og með 28. maí. Göngurnar eru kvöldgöngur og henta flestum sem geta hreyft sig með góðu móti sem og nýliðum í útivist og hvetjum við einnig þá sem vanari eru göngum að taka þátt með okkur. Gönguleiðirnar eru fjölbreyttar og er tekið mið af veðri og færð hverju sinni.
Göngurnar taka 2–4 klukkustundir og koma þátttakendur sér á staðinn á einkabílum nema annað sé tekið fram.
Þátttaka í göngunum er félagsmönnum Útivistar að kostnaðarlausu en æskilegt er að skrá þátttöku í hverja göngu fyrir sig í viðburði á Facebook.
Til að vera gjaldgengur í Útivistargírinn er nóg að skrá sig í félagið hér og skrá sig svo í facebook hóp Útivistargírsins hér. Einungis félagsmenn verða samþykktir í hópinn. 
Ef þú ert félagsmaður og hefur ekki verið samþykktur í hópinn hafði þá samband við utivist@utivist.is Það getur verið að nafn á FB og nafn í okkar skrám stemmi ekki saman.
Göngurnar verða á þriðjudögum kl. 18:00

Dagskrá

2. apríl     Guðmundarlundur


9. apríl     Laugardalur

16. apríl   Úlfarsárdalur/Hólmsheiði

23. apríl   Vogastapi og nágrenni                                           

30. apríl   Ásfjall og Ástjörn

7. maí      Leirvogur og umhverfi

14. maí     Stóra - Reykjafell

21. maí    Esjuhlíðar

28. maí    Lyklafell

Nr.