Brunað austur fyrir fjall á föstudagskvöldi og gist í bændagistingu undir Eyjafjöllum. Þaðan verður stefnan tekin á Sólheimajökul og yfir Mýrdalsjökul í Strút þar sem verður gist. Tilvalin ferð fyrir nýliða í vetrarferðamennsku á jeppum. Leiðarval á heimleið fer eftir færð og aðstæðum. Þátttaka háð samþykki fararstjóra.
Fararstjóri Benedikt Hálfdánarson.
Strútur á Mælifellssandi
kl. 19:00.