Langjökull er einn vinsælasti vettvangur jeppaferða í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Snemma á laugardagsmorgni verður ekið sem leið liggur í Húsafell og áfram í Þjófakrók. Þar verður farið upp jökulinn og stefnt að hinni tröllslegu Þursaborg. Haldið að Hveravöllum og gist þar. Leiðarval á heimleið fer eftir færð og aðstæðum. Ferð fyrir mikið breytta jeppa. Þátttaka háð samþykki fararstjóra.
kl. 08:00.