Dags: 17. - 19.9.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 21000 kr.
Félagsverð: 19000 kr.
Nr. 1009H01

Á þessum árstíma skrýðist náttúran sínum fegurstu litum, rauðum og gulum sem benda til þess að gróðurinn sé að leggjast í dvala. Það ætla þeir sem koma í ferðina ekki að gera heldur njóta þess að ganga um og skemmta sér í fallegri umgjörð Goðalands. Á laugardagskvöldinu verður grillað og menn orna sér við varðeldinn og syngja og dansa á kvöldvökunni.

Fararstjórar: Jóhanna Benediktsdóttir & Emilía Magnúsdóttir

Afmælishátíð Útivistar

Útivist heldur upp á 35 ára afmæli sitt í Básum á Goðalandi laugardaginn 18. september. Þar koma Útivistarfélagar og samferðafólk saman og fagna afmælinu. Boðið verður upp á kaffi, grill og gaman.
Helgarferðirnar Grill og gaman og Laugavegur hraðferð eru helgaðar afmæli félagsins. Einnig er í boði dagsferð á Goðaland við Þórsmörk að morgni 18. september. Gönguferðir verða við allra hæfi og viðbúið að notaðar verði nýju göngubrýrnar til að fara yfir í Stóraenda eða til þess að kynnast öðrum  náttúruperlum í Þórsmörk.
Kaffi og meðlæti  er í umsjón kaffinefndar félagsins og fyrir þá sem gista er grillveisla að hætti Útivistar, kvöldvaka og varðeldur.

Skráning á skrifstofu Útivistar og á netinu.

Allir velkomnir



 

Dags: 15. - 17.10.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1010H01
Veturinn hefst með kraftmikilli kjötsúpu í góðum fjallaskála. Ekið í Dalakofann á föstudagskvöldi. Á laugardegi verður farið í gönguferð í nágrenni skálans en þaðan er meðal annars stutt í skemmtileg jarðhitasvæði og jafnvel hægt að lauga sig. Eftir gönguna verður sest að kjötsúpunni.
Dags: 26. - 28.11.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1011H01
Viltu hefja undirbúning jólanna langt frá amstri hversdagsins? Þá er kjörið að koma í aðventuferðina í Bása. Þar verður farið í gönguferðir, sungið og leikið. Áhersla lögð á að fullorðnir og börn skemmti sér saman.
Dags: 30.12. - 2.1.2011
Brottför: kl. 08:30.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1012H01
Það er mikil tilbreyting fólgin í því að kveðja gamla árið og fagna því nýja í Básum á Goðalandi. Margt verður til gamans gert og auðvitað verður farið í gönguferðir og skíðaferðir en áherslan lögð á notalegheit og samveru. Á gamlárskvöld verður brenna og kvöldbrenna.