Kúagerði – Vogar

Dags: 14.2.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Verð: 3400 kr.
Félagsverð: 2700 kr.
Nr. 1002D02
Frá Kúagerði verður farið að Stóru-Vatnsleysu og þaðan í Flekkuvík að samnefndu eyðibýli. Þar er svokallað Flekkuleiði með letursteini á. Áfram haldið út á Keilisnes þar sem til stóð að reisa álver og að kirkjustaðnum Kálfatjörn. Þaðan verður ströndinni fylgt eins og kostur er út í Voga. Ströndin er tilkomumikil og víða eru minjar um forna atvinnuhætti. Vegalengd 16 km. Hækkun engin. Göngutími 5-6 klst.


Fararstjóri Grétar W. Guðbergsson.