Búrfell í Grímsnesi sést víða að enda skyggja fá fjöll á það. Þar er ýmislegt að sjá t.d. leynist vatn við toppinn og steinbogi í hlíðum fjallsins. Farið frá kirkjustaðnum Búrfelli upp á efsta hluta fjallsins, haldið niður af því í átt að Írafossi og gengið með strönd Úlfljótsvatns. Vegalengd 15 km. Hækkun 400 m. Göngutími 5-6 klst.
Fararstjóri Heimir Sæberg Loftsson.