Dags: 1. - 3.10.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 11000 kr.
Félagsverð: 9000 kr.
Nr. 1009J01

Eftir vel heppnað vatnasull síðastliðið haust þykir ástæða til að gefa fleirum færi á að kynnast vöðum Tungnaár og Markarfljóts. Ferðir frumkvöðlanna verða rifjaðar upp og vöð yfir stórfljótin könnuð. Einnig verður farið í gegnum helstu grunnatriði við akstur yfir ár.

Fararstjóri: Hlynur Snæland

Dags: 8. - 10.10.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1010J01
Vonarskarð er falið á milli Tungnafellsjökuls og Vatnajökuls og mótað af nágrenni við jökla auk þess sem þar leynast volgar laugar, jarðhiti og litrík svæði. Gist í Hólaskógi í Gnúpverjahreppi að kvöldi föstudags en árla dags verður farið um Búðarháls og Kvíslaveituveg í Nýjadal þar sem gist verður í skála. Á sunnudegi liggur leiðin suður Vonarskarð. Þátttaka háð samþykki fararstjóra.
Dags: 5. - 7.11.
Brottför: kl. 19:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1011J01
Iðulega heldur veturinn innreið sína fyrst á Mælifellssandi. Þótt autt sé víða um land breiðir snjórinn úr sér á sandinum norðan Mýrdalsjökuls og í fallegu dalverpi innan við Mælifell stendur Strútsskáli.
Dags: 4. - 5.12.
Brottför: frá Hvolsvelli kl. 10:00.
Erfiðleikastig:
Gisting:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1012J01
Aðventuferð jeppadeildar í Bása hefur yfir sér hátíðarblæ enda stutt til jóla. Búið er að skreyta skálana og kannski verður kominn jólasnjór. Léttar göngur og kvöldvaka með söng og gleði. Sameiginleg máltíð þar sem hver og einn kemur með mat á hlaðborðið.