|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 Fax: 562 1001 utivist@utivist.is webmaster@utivist.is |
Velkomin að myndasögum Útivistar
Hér er að finna myndir, ferðasögur og frásagnir úr starfi félagsins. Ferðasagan er vettvangur fyrir þá sem ferðast með Útivist eða taka annan þátt í starfi félagsins að senda inn myndir og frásagnir og gefa þannig öðrum hlutdeild í ánægjulegri ferð, eða starfi . Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu. Smelltu hér ef þú sérð ekki myndirnar eða ef þú færð ekki stærri myndir.
Þeir sem hafa áhuga á að senda myndir úr ferðum, sem birta má á heimasíðu Útivistar eru vinsamlega beðnir um að senda þær á myndirutivist@gmail.com
Ef myndasöfnin birtast ekki er það líklega vegna þess að það vantar nýjustu útgáfu af Macromedia Flash Player sem fæst ókeypis á macromedia.com.
_______________________________________________________________________
Annan laugardag í janúar var hjólaferð. Það var greinilega ekki mikill áhugi fyrir henni því einungis tveir hjólagarpar mættu á hjóli. Og það er spurning hvort veðrið hafði sitt að segja eða hvort hinir hjólagarparnir voru bara enn í jólafríi. En auk hjólagarpanna tveggja mættu fimm manns, alveg að drepast úr forvitni, til að sjá hverjir myndu mæta. Seinna fréttist af enn einum forvitnum sem beið við stífluna til að taka myndir af hópnum. En hópurinn fór annað og enn bíður ljósmyndarinn . . . Ein forvitin bauð í pönsur heim til sín og var það boð vel þegið, líka af þeim sem mættu hjólalaus. Hjólahópurinn lagði af stað í hjólaferð og forvitna liðið lagði af stað á bílnum til að undirbúa pönsuboð. Hjólað var í gegnum Fossvoginn, um Öskjuhlíð og svo beinustu leið í pönsur. Þar fannst reyndar helmingnum af hópnum að hann væri ekki búinn að hjóla nóg og kvaddi og hjólaði áfram, og er hann nú úr sögunni. En hinn helmingurinn af hópnum var alveg búinn að hjóla nógu lengi og fór inn og naut glæsilegra veitinga eins og forvitna liðið. Og þegar veitingar voru horfnar og búið að ræða allt milli himins og jarðar var gestgjafanum þökkuð gestrisnin og fór hver og einn til síns heima. Vonandi. Grétar W. Guðbergsson sendi myndirnar. Myndirnar frá því í fyrra má skoða hér.