04. febrúar 2010 | 16:47
Bókun er hafin!
Við byrjum daginn á heilsusamlegri göngu að hætti Útivistar, göngumenn og hjólreiðamenn hittast við Toppstöðina í Elliðaárdal kl. 10:00 laugardagsmorguninn 13. febrúar nk. Þaðan halda göngumenn á eigin bílum í átt að Búrfellsgjá þar sem Steinar Frímannsson mun vera í fararbroddi í göngu um Búrfellsgjá - Helgadal. Vegalengd um 8-10 km. Göngutími um 3 klst. Hjólreiðamenn hjóla á höfuðborgarsvæðinu nema annað verði auglýst.
Um kvöldið verður þorrablótið svo haldið í Húnabúð frá kl. 20:00-01:00.
Þorramatur, lifandi tónlist, söngur, dans og gleði fram á nótt.
Verð 5.000 kr.
Nauðsynlegt að bóka á skrifstofu Útivistar ef ætlunin er að taka þátt í matnum.
Húsið opnar kl. 22.00 fyrir þá sem vilja taka þátt í gleðinni án þess að taka þátt í borðhaldi.
Verð 2.200 kr. Opinn bar.
Allir velkomnir. Sjáumst