Myndakvöld

Dags: 12.04.
Almennt verð: 900 kr.
Nr. 1004MK01
Myndanefnd og kaffinefnd Útivistar standa fyrir 5 myndakvöldum yfir vetrartímann. Sýndar eru myndir sem félagsmenn hafa tekið á ferðum sínum auk þess sem gestaljósmyndarar eru fengnir til að sýna myndir. Myndirnar eru sýndar á stóru sýningartjaldi og stendur sýningin yfir í rúma klukkustund. Mikil aðsókn er að myndakvöldum félagsins sem eru öllum opin. Kvöldin eru góður vettvangur til að hittast, bæði fyrir eldri og yngri félagsmenn en eins fyrir þá sem hyggja á ferðir með félaginu. Myndirnar eru oft góð kynning á þeim ferðum sem eru á dagskrá Útivistar og er þeim lýst þannig að áhorfandinn er hrifinn með í ferðina. Þegar myndasýningu er lokið býður kaffinefndin upp á kökuhlaðborð. Aðgangseyrir er 900 kr og er hagnaðinum varið í góð málefni í þágu Útivistar.

Myndakvöldin eru haldin kl. 20 í Húnabúð, Skeifunni 11.

Myndakvöld vetrarins:  5. október, 2. nóvember, 1. febrúar, 1. mars og 12. apríl.

Öllum sem hafa áhuga á og luma á góðum ljósmyndum er velkomið að koma þeim á framfæri við myndanefnd Útivistar, á Laugaveg 178 eða á utivist@utivist.is