Myndanefnd og kaffinefnd Útivistar standa fyrir 5 myndakvöldum yfir vetrartímann. Sýndar eru myndir sem félagsmenn hafa tekið á ferðum sínum auk þess sem gestaljósmyndarar eru fengnir til að sýna myndir. Myndirnar eru sýndar á stóru sýningartjaldi og stendur sýningin yfir í rúma klukkustund. Mikil aðsókn er að myndakvöldum félagsins sem eru öllum opin. Kvöldin eru góður vettvangur til að hittast, bæði fyrir eldri og yngri félagsmenn en eins fyrir þá sem hyggja á ferðir með félaginu. Myndirnar eru oft góð kynning á þeim ferðum sem eru á dagskrá Útivistar og er þeim lýst þannig að áhorfandinn er hrifinn með í ferðina. Þegar myndasýningu er lokið býður kaffinefndin upp á kökuhlaðborð. Aðgangseyrir er 900 kr og er hagnaðinum varið í góð málefni í þágu Útivistar.
Myndakvöldin eru haldin kl. 20 í Húnabúð, Skeifunni 11.
Myndakvöld vetrarins: 5. október, 2. nóvember, 1. febrúar, 1. mars og 12. apríl.
Öllum sem hafa áhuga á og luma á góðum ljósmyndum er velkomið að koma þeim á framfæri við myndanefnd Útivistar, á Laugaveg 178 eða á utivist@utivist.is
Sýndar verða myndir úr bakpokaferð sem farin var um sl. verslunarmannahelgi um stórkostlegt og algjörlega ósnortið landsvæði sem er ekki mjög fjölfarið. Ferðin hófst við Djúpá í Fljótshverfi og var gengið upp með ánni sem rennur um Djúpárdal að upptökum árinnar. Á leiðinni er margt fagurra fossa og stórbrotið landslag. Þaðan var haldið að Grænafjalli þar sem ölkelda og hið litfagra Taumagil var skoðað. Síðan var gengið með Grænalóni og niður með stórkoslegum gljúfrum Núpsár, um Skessutorfur, niður Kálfsklif og endað í Núpsstaðarskógum þar sem hópurinn sameinaðist öðrum Útivistarhóp sem var þar í bækistöðvarferð. Aðalmyndasmiður kvöldsins er Stefán S. Kristinsson en einnig eiga myndir Una Sigurðardóttir og Reynir Þór Sigurðsson sem jafnframt lýsir myndunum. Boðið er upp á samskonar ferð í lok júlí n.k. og því áhugsasömum um þá ferð sérstaklega bent á að mæta. Sýningin er þó sem fyrr öllum opin og er aðgangseyrir 900 kr. Innifalið er stórglæsilegt kökuhlaðborð kaffinefndar Útivistar í lok sýningar.