|
|
|
Ferðafélagið Útivist
Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími: 562 1000 Fax: 562 1001 utivist@utivist.is webmaster@utivist.is |
Síðan 1975 hefur Útivist boðið félagsmönnum sínum og öðrum upp á fjölbreyttar ferðir í skemmtilegum félagsskap. Útivist býður upp á dagsferðir, helgarferðir, sumarleyfisferðir og kvöldferðir með Útivistarræktinni. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi allt frá léttum gönguferðum upp í erfiðar fjallaferðir að sumri og vetri fyrir vel þjálfað fólk. Einnig er boðið upp á rútuferðir í Bása og víðar. Á dagskrá jeppadeildarinnar eru margar mismunandi ferðir jafnt sumar sem vetur. Ferðanefndir og framkvæmdastjóri sjá um undirbúning og skipulag ferða. Nánari upplýsingar fyrir einstakar ferðir er hægt að fá á skrifstofu Útivistar á Laugavegi 178, í síma 562-1000.
AFGREIÐSLUTÍMI SKRIFSTOFUNNAR ER:
frá kl. 10 til 17 virka daga
Starfsmenn skrifstofu:
Skúli H. Skúlason,
farsími 894 2920
Félagsstarfið
Stjórn Útivistar hefur umsjón með daglegum rekstri félagsins ásamt framkvæmdastjóra. Einnig eru á vegum félagsins starfandi nokkrar nefndir sem sjá um afmarkaða þætti, hver á sínu sviði, í samvinnu við framkvæmdastjóra.
Má þar nefna ferðanefndir, sem skipuleggja göngu- og rútuferðir félagsins, jeppanefnd, sem sér um jeppaferðir, mynda- og kaffinefnd, sem sér um myndakvöld, ritnefnd, sem sér um útgáfumál, og skálanefndir sem sjá um viðhald og rekstur skála.
Fararstjórafræðsla er öflug hjá Útivist. Þar fá fararstjórar þjálfun í öllu sem snýr að fararstjórn, svo sem rötun, skyndihjálp, hópstjórn og tilsögn í gagnaöflun um landafræði og sögu ýmissa svæða.
Auk þess, sem nefnt er hér að ofan, má nefna opið hús sem er fræðslu- og spjallkvöld og haldið mánaðarlega yfir vetrartímann. Einnig heldur jeppanefndin reglulega fræðslukvöld yfir veturinn. Síðast en ekki síst er Útivistarræktin öflugur félagslegur vettvangur og grasrót félagsins.
Útivistarfélagar
Það borgar sig að vera félagi í Útivist því ýmis hlunnindi eru í boði. Félagsmenn fá góðan afslátt af gistingu í skálum félagsins og í allar ferðir. Félagsaðild opnar aðgang að fjölbreyttu og þróttmiklu innra starfi félagsins. Auk þess bjóða ýmis fyrirtæki góðan afslátt af vörum og þjónustu fyrir félagsmenn Útivistar.
Aðdragandi að stofnun Útivistar