Velkomin að myndasögum Útivistar

Hér er að finna myndir, ferðasögur og frásagnir úr starfi félagsins. Ferðasagan er vettvangur fyrir þá sem ferðast með Útivist eða taka annan þátt í starfi félagsins að senda inn myndir og frásagnir og gefa þannig öðrum hlutdeild í ánægjulegri ferð, eða starfi . Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu. Smelltu hér ef þú sérð ekki myndirnar eða ef þú færð ekki stærri myndir.

Þeir sem hafa áhuga á að senda myndir úr ferðum, sem birta má á heimasíðu Útivistar eru vinsamlega beðnir um að senda þær á myndirutivist@gmail.com

Ef myndasöfnin birtast ekki er það líklega vegna þess að það vantar nýjustu útgáfu af Macromedia Flash Player sem fæst ókeypis á macromedia.com.

         

_______________________________________________________________________

03. september 2010

Annan laugardag í ágúst mættu níu manns í hjólaferð. Ekki voru allir búnir að lesa smáaletrið og því þurfti fyrst að fara í sjoppu til að kaupa nesti. Hjólað var upp Elliðaárdalinn í átt að Breiðholtsbraut við Vatnsendahverfi. Þar var tekin vinstri beygja í átt að Norðlingaholti. Eftir sjoppu- og

02. september 2010

Stór hópur gekk í góðu veðri á Meðalfell í Kjós. Gangan byrjaði austan megin við fellið og var gengið í vestur, öfugt við fyrri ferðir sem Útivistarræktin hefur farið á Meðalfell. Grétar W. Guðbergsson sendi myndirnar. Fleiri myndir frá Grétari má skoða hér og ferðasögu hans má lesa hér .

01. september 2010

Nýjar myndir hafa bæst við. Grétar W. Guðbergsson sendi þær. Fleiri myndir frá Grétari má skoða hér . Ferðasögu hans má lesa hér . Það var stór hópur sem lagði af stað á Geitafellið. Í áætlun stóð að ganga ætti fyrst á Sandfell en flestir létu sem þeir sæju það

31. ágúst 2010

Aðeins fjórir göngugarpar gengu yfir Fimmvörðuháls í ferðinni sem farin var um miðjan júlí. Þeir tóku áætlunarbíl austur að Skógum og byrjuðu að ganga um hálf níu að kvöldi til. Veður var gott til að byrja með, bjart og smá gola en þegar nálgaðist Baldvinsskála var öskufok og komu göngumenn

30. ágúst 2010

Í lok júlí naut stór hópur göngugarpa sumarblíðunnar í göngu á Háhrygg í Dyrafjöllum. Gangan byrjaði hjá hitaveitutönkunum og var fyrst gengið í norðuraustur. Veðrið og útsýnið var gott eins og sjá má á myndum sem Grétar W. Guðbergsson sendi. Myndir frá 2006 má skoða hér .

27. ágúst 2010

Á mánudagskvöldið þann 19. júlí hittust níu hjólagarpar á tjaldsvæðinu á Kópaskeri. Þeir lögðu af stað daginn eftir í yndislega ferð um Melrakkasléttu og Langanes. Fyrsta hjóladaginn var hjólað um Melrakkasléttu í frábæru veðri. Við Nýhöfn tók einn af eigendum, Níels Árni Lund, á móti hópnum og fengu hjólagarpar skemmtilega

24. ágúst 2010

Nýjar myndir hafa bæst við. Grétar W. Guðbergsson sendi þær. Fleiri myndir frá Grétari má skoða hér . Ferðasögu hans má lesa hér . Sigurpáll Ingibergsson bloggar um gönguna á Blákoll sem má lesa hér . 42 íslendingar og 3 svíar gengu í góðri veðri á Blákoll miðvikudaginn

23. ágúst 2010

Sumarleyfisferð jeppadeildar Útivistar var að þessu sinni um Vestfirði. Hópurinn hittist í Bjarkarlundi að morgni laugardags um Verslunarmannahelgina og þaðan var haldið um heiðar og firði, víkur og strendur. Meðal ferðaleiða má nefna Þingmannaheiði, línuveg af Dynjandisheiði yfir á Tálknafjörð, Selárdal, Sléttanes og um svonefnda Kjaransbraut, Kvennaskarð, Ingjaldssand og línuveg

20. ágúst 2010

Ferðir Útivistar í Þórisdal hafa alltaf verið vel sóttar. Þar sem veðurútlit var ekki gott voru það bara þeir sem eru harðir af sér eða lesa ekki veðurspár sem mættu í ferðina. Sæmundi tókst snilldarlega að koma bílnum um hina erfiðu leið í átt að Prestahnúki og hann hefði örugglega

19. ágúst 2010

Fimm hjólagarpar og einn úr hjólaræktaraðdáendaklúbbnum mættu 10. júlí við Toppstöðina í Elliðaárdal. Þegar sá úr hjólaræktaraðdáendaklúbbnum var búinn að fá fullt af eiginhandaráritunum hvarf hann af vettvangi og hjólagarparnir fimm stukku á stálhrossin sín og hjóluðu um Seltjarnarnes. Reyndar týndist einn strax í upphafi ferðir og er spurning hvort