Hér eru upplýsingar um ferðir Útivistar 2010 þar sem markmiðið er að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Margir hafa lagt hönd á plóginn við skipulagningu og útfærslu á þeim fjölda ferða sem eru í áætluninni. Dags-, jeppa- og langferðanefndir Útivistar eiga veg og vanda að þessu fjölbreytta úrvali. 

Að venju er fjölbreytt úrval áhugaverða ferða á dagskrá félagsins.  Fjallabakssvæðið og Básar á Goðalandi eru megin athafnasvæði Útivistar en auk þess má finna í áætluninni spennandi ferðir í aðra landshluta.

Það er von okkar að ferðirnar veki áhuga þinn hvort sem þú kýst að ganga, ferðast um á skíðum eða í jeppa.  

Njótið vel,
Útivist 


Hvað merkja táknin?

Léttar ferðir. Eru ætlaðar öllum.
Miðlungs erfiðar ferðir. Flestir geta tekið þátt hafi þeir réttan útbúnað og líkamlega getu til þess.
 Erfiðar ferðir. Einungis fyrir vana ferðamenn sem geta borið með sér allan útbúnað og eru færir um að takast á við ófyrirsjáanlegan vanda.

 Gist í skála.

 Gist í tjaldi.

  Trúss.

 Kjörin ferð fyrir fjölskylduna.  


Erfiðleikastig jeppaferða 

 Lítið. Harðfenni, dregið í skafla á stöku stað. Þéttur og þjappaður snjór.

  Meðal. Þéttur snjór lítið um púðursnjó eða erfiða skafla, nokkuð um skarir.

   Mikið. Jöklar, nýfallinn djúpur snjór.


Í jeppaferðum á vegum Útivistar er gerð krafa um að í hverjum bíl sé skófla, kaðall og VHF talstöð, í ferðunum fara samskipti fram á Útivistarrásinni sem er númer 41. Hægt er að leigja VHF talstöðvar hjá Aukaraf, Radíóþjónustu Sigga Harðar og á skrifstofu Útivistar.

Viðmiðunartafla fyrir jeppaferðir